Ákæra gefin út í Rauðagerðismálinu

Armando Beqirai var myrtur á heimili sínu í Rauðagerði um …
Armando Beqirai var myrtur á heimili sínu í Rauðagerði um miðjan febrúar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ákæra hefur verið gefin út á hendur fjórum einstaklingum fyrir að hafa svipt Armando Beqirai lífi laugardaginn 13. febrúar 2021.

Ákærðu eru þrír karlmenn á fertugs- og fimmtudagsaldri og ein kona á þrítugsaldri.

Segir í ákæru, sem mbl.is fékk afhenta nú síðdegis, að karlmaður á fertugsaldri hafi sýnt konu á þrítugsaldri tvær bifreiðar sem tilheyrðu Armando og var lagt í porti við Rauðarárstíg og gefið henni fyrirmæli um að fylgjast með þeim og jafnframt senda skilaboð í gegnum samskiptaforritið Messenger til meðákærða þegar hreyfing yrði á bifreiðunum. Konan mun hafa orðið við þeirri beiðni.

Tveir aðrir karlmenn eru ákærðir. Segir í ákæru að tveir menn hafi elt bifreið Armando að heimili hans við Rauðagerði. Annar maðurinn, Angjelin Sterkaj, fór út úr bílnum, faldi sig við bílskúr við hús Armando og þegar Armando kom út úr bílskúrnum skaut Angjelin hann níu sinnum í líkama og höfuð með þeim afleiðingum að hann lést. Þá var hann sóttur aftur og mennirnir tveir keyrðu í Varmahlíð í Skagafirði með viðkomu í Kollafirði þar sem þeir losuðu sig við skammbyssuna með því að henda henni í sjóinn.

Ákærðu eru sameiginlega krafin um rúmar 68 milljónir.

Eiginkona Armando krefst þess að ákærðu verði gert að greiða henni miskabætur að upphæð fimm milljónir og auk þess gerir hún miskabótakröfu upp á fimm milljónir bæði fyrir hönd sonar síns og Armando og ófædds barns þeirra hjóna. Hún gerir auk þess kröfur um bætur fyrir missi framfæranda.

Foreldrar Armando krefjast einnig hvort um sig fimm milljóna í miskabætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert