Enn hætta á gróðureldum þrátt fyrir rigningar

Þrátt fyrir rigningar síðustu daga er enn hætta á að …
Þrátt fyrir rigningar síðustu daga er enn hætta á að gróðureldar kvikni, til dæmis í Heiðmörk, þar sem enn er næturfrost og viðkvæmur gróður. mbl/Sigurður Unnar

Enn er hættustig almannavarna í gildi á höfuðborgarsvæðinu, á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austur-Skaftafellssýslu vegna gróðurelda. Óvissustig er á Suðurnesjum, Árnessýslu og Rangárvallasýslu. 

Í tilkynningu frá almannavörnum segir að enn sé nokkuð þurrt sums staðar á suðvesturhorninu þrátt fyrir hressilegar rigningar síðustu daga, eins og til dæmis í Heiðmörk, þar sem enn er næturfrost og hefur gróður því ekki tekið við sér. Jafnframt segir að bann sé í gildi við meðferð opins elds á þeim svæðum sem um ræðir. 

Spáð er áframhaldandi þurrki næstu daga ásamt talsverðum vindi eða allt að 15 metrum á sekúndu aðfararnótt fimmtudags. 

Hér má sjá hvar hættu- og óvissustig almannavarna vegna gróðurelda …
Hér má sjá hvar hættu- og óvissustig almannavarna vegna gróðurelda er í gildi. Kort/Almannavarnir

„Hættustig almannavarna er sett á ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum þó ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sé að ræða. Að lýsa yfir hættustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings,“ segir í tilkynningu almannavarna. 

Almenningur og sumarhúsaeigendur á hættu- og óvissusvæðum eru beðnir um að hafa eftirfarandi í huga:

  • Ekki kveikja eld innan sem utandyra (kamínur, grill, varðeldar, flugeldar og fleira)
  • Ekki nota einnota grill sem og venjuleg grill
  • Kanna flóttaleiðir við sumarhús
  • Huga að brunavörnum (slökkvitæki, reykskynjarar) og gera flóttaáætlun
  • Ekki vinna með verkfæri sem hitna mikið eða valda neista
  • Fjarlæga eldfim efni við hús (huga að staðsetningu gaskúta)
  • Bleyta í gróðri kringum hús þar sem þurrt er
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert