Óvissustig á Norðurlandi eystra

Sinubruninn við Lundeyri.
Sinubruninn við Lundeyri. mbl.is/Þorgeir

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjórana á Norðurlandi eystra, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum.

Þessi ákvörðun er byggð á því að lítið hefur rignt á svæðinu undanfarið og veðurspá næstu daga sýnir heldur ekki neina úrkomu að ráði. Þetta þýðir að aðeins Austurland, Vestur-Skaftafellssýsla og Vestmannaeyjar eru ekki á óvissu- eða hættustigi vegna gróðurelda, að því er segir í tilkynningu frá almannavörnum.

Í dag var slökkvilið Akureyrar kallað út vegna sinubruna við Lundeyri í norðanverðu Holtahverfi. Mikinn reyk lagði yfir nágrennið. Í gær varð einnig sinubruni á Ólafsfirði í fyrsta skipti í langan tíma á því svæði.

Almenningur er hvattur til að sýna aðgát með opinn eld á svæðinu, ekki síst þar sem gróður er þurr.

„Það þarf ekki mikinn neista til þess að af verði stórt bál. Ef fólk verður vart við gróðurelda á strax að hringja í 112,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert