„Ótrúleg ósvífni“ ÍFF og Play gagnvart launafólki

Drífa Snædal, forseti ASÍ
Drífa Snædal, forseti ASÍ Ljósmynd/Aðsend

Forseti ASÍ segir flugfélagið Play bera öll merki þess að vera gult stéttarfélag. „Ótrúleg ósvífni“ Íslenska flugstéttarfélagsins og Play gagnvart launafólki á Íslandi muni smitast um allan vinnumarkaðinn ef ekki verði staðið hraustlega gegn tilraunum til að brjóta á bak aftur frjáls stéttarfélög sem vinni raunverulega að hagi sinna félagsmanna.

Þetta kemur fram í vikulegum pistli Drífu Snædal, forseta ASÍ.

„Gul stéttarfélög eru félög sem eru undir áhrifavaldi atvinnurekenda og eru stofnuð til að koma í veg fyrir að starfsfólkið sé félagar í óháðum og raunverulegum stéttarfélögum. ÍFF, sem flugfélagið Play hefur samið við, ber öll merki þess að vera gult stéttarfélag enda er það nú orðið ljóst að svokallaðir kjarasamningar fyrir flugfreyjur og -þjóna voru ekki gerðir af þeim sem áttu að vinna samkvæmt kjarasamningunum. Nokkrir flugmenn sömdu fyrir flugfreyjur og -þjóna. Fólkið sem á að vinna samkvæmt þessum samningi var víðs fjarri,“ skrifar Drífa í pistli sínum.

„Flugfélagið Play hefur svo neitað að hitta eina raunverulega stéttarfélag flugfreyja og -þjóna, félag sem hefur sannanlega staðið með sínum félögum, hefur stuðning frá öðrum stéttarfélögum innan Alþýðusambandsins og sótt styrk í heildarsamtökin. Þetta vita fyrrum flugfreyjur og -þjónar hjá WOW air mæta vel. Þau muna vel þegar Flugfreyjufélag Íslands, með stuðningi frá ASÍ, lánaði félögum sínum peninga þegar launagreiðslur brugðust eftir gjaldþrot WOW air, þangað til ábyrgðasjóður launa var búinn að greiða skaðann,“ bætir hún við.

„Hin ótrúlega ósvífni ÍFF og Play gagnvart launafólki á Íslandi mun smitast út um allan vinnumarkaðinn ef ekki er staðið hraustlega gegn tilraunum til að brjóta á bak aftur frjáls stéttarfélög sem vinna raunverulega að hag félagsmanna sinna. Baráttan mun halda áfram og standa þangað til Play gerir raunverulegan kjarasamning við raunverulegt stéttarfélag. Því lofa ég en verð jafnframt fyrsta manneskjan til að fagna samkeppni á flugmarkaði sem byggist á raunverulegri viðskiptalegri samkeppni en ekki samkeppni um hverjum takist að greiða lægstu launin.“

Drífa minnist einnig á vinnumarkaðsskýrslu ASÍ sem kom út í dag og segir endurreisn ferðaþjónustunnar ekki mega byggja á lægri launum, verri samningum, sniðgöngu stéttarfélaga eða lakari aðbúnaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert