Sigurður Ingi ræsti fyrsta Miðfellshlaupið

Sigurður Ingi ásamt 5 kílómetra hópnum við Miðfell.
Sigurður Ingi ásamt 5 kílómetra hópnum við Miðfell. Ljósmynd/Aðsend

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ræsti fimm kílómetra leiðina í Miðfellshlaupinu í gær. Þetta var fyrsta Miðfellshlaupið en það er hluti af átakinu „Heilsueflandi samfélag“ í Hrunamannahreppi. Skráningargjaldið rann óskipt til landbyggðadeildar Ljóssins.

Um hundrað manns tóku þátt og hlupu milli Flúða og Miðfells. Þátttakendur gátu valið milli 3, 5 eða 10 kílómetra hlaupaleiða.

„Við erum ótrúlega þakklát skipuleggjendum og öllum þeim sem hlupu og hjálpuðu okkur þannig að vekja athygli á nýstofnaðri Landsbyggðardeild Ljóssins. Deildinni er ætlað að styðja betur við þá sem greinast með krabbamein og búsettir eru á landsbyggðinni,“ segir Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins, í tilkynningu.

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess.

Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert