Handtekinn eftir að hafa hótað RÚV

Öryggisgæsla í Efstaleiti var aukin tímabundið í gær á meðan …
Öryggisgæsla í Efstaleiti var aukin tímabundið í gær á meðan lögregla handtók þann sem stóð að baki hótunum í garð stofnunarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn er í haldi lögreglu eftir að hafa haft í hótunum við RÚV og starfsmenn stofnunarinnar. Viðkomandi var handtekinn í gær og var öryggisgæsla í Efstaleiti, húsakynnum RÚV, aukin í gær vegna málsins. Eftir að lögregla handtók þann sem ábyrgur var færðist öryggisstig aftur í samt horf. 

Þetta segir Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is. 

Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn.
Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn. mbl.is/Sigurður Bogi

„Í gær virðist sem eitthvað hafi borist, það sem telja mætti sem hótanir, gagnvart stofnuninni eða starfsfólki og á meðan lögregla var að staðsetja og handtaka viðkomandi sem stóð á bak við þessar hótarnir, þá jók Ríkisútvarpið við öryggisgæslu í húsinu. En eftir að viðkomandi var handtekinn þá var það dregið til baka,“ segir Ásgeir. 

Eftir því sem hann best veit er viðkomandi enn í haldi lögreglu. Að auki segist hann ekki geta tjáð sig um eðli hótunarinnar en aðspurður neitar hann því að um sprengjuhótun hafi verið að ræða. 

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri hafði áður staðfest við mbl.is að öryggisgæsla hafi verið aukin tímabundið en kaus að tjá sig ekki um ástæðu þess. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert