Taka við stafrænu evrópsku Covid-19 vottorði

Tekið verður nú við stafrænu evrópsku Covid-19 vottorði á landamærunum.
Tekið verður nú við stafrænu evrópsku Covid-19 vottorði á landamærunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heilbrigðisráðuneytið hóf í gær tilraunaverkefni um móttöku stafræns evrópsks Covid-19 vottorðs á landamærum Íslands fyrir þá sem koma til landsins.

Vottorðið er í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins (ESB) sem samkomulag náðist nýlega um og verður tekin upp í EES-samninginn með fyrirhugaðri gildistöku 1. júlí. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins

Þar segir, „markmiðið er að auka frjálsa för fólks milli ríkja og auka öryggi einstaklinga meðan á Covid-19 faraldrinum stendur.“

Gildir í öllum ríkjum ESB og EFTA

Stafræna vottorðið mun innihalda upplýsingar um bólusetningar gegn Covid-19, niðurstöður um PCR-vottorð, hafi það verið neikvætt, og bata, hafi viðkomandi sýkst. Vottorðið mun gilda í öllum ríkjum ESB auk Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss.

Hægt verður að nálgast vottorðið gjaldfrjálst á pappír sem og stafrænu formi með því að hlaða því niður í farsíma.

Á næstu dögum verða neikvæð PCR-vottorð sem gefin eru út hér landi í þessu nýja formi. Í kjölfarið verða bólusetningarvottorð og vottorð um bata einnig færð yfir í þetta form. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert