Barnungar barnapíur brot á lögum

Barnavagnar. Börn undir 15 ára eru að taka að sér …
Barnavagnar. Börn undir 15 ára eru að taka að sér barnapössungegn gjaldi, þótt lögin miði við 15 ára aldurstakmark mbl.is/Ómar Óskarsson

Víða má sjá börn, allt frá 8 til 15 ára, auglýsa þjónustu sína við pössun yngri barna fyrir sumarið. Foreldrar leggja oftar en ekki hönd á plóg og auglýsa fyrir þau á Facebook-hópum hverfanna, þá er sérstaklega tekið fram ef börnin hafa lokið við námskeið Rauða krossins sem ber heitið Börn og umhverfi. Staðan er hinsvegar sú að börn undir 15 ára mega ekki ráða sig í vinnu við barnapössun.

Vinnuverndarlöggjöf skýrð

Fyrir tæpum 25 árum var evrópsk vinnuverndarlöggjöf innleidd sem setti því strangar skorður hvers kyns störfum börn mættu gegna og við hvaða aldur skyldi miða, en samkvæmt henni eru börn einstaklingar yngri en 15 ára. Herdís Storgaard, forstöðumaður hjá Mistöð slysavarna barna (MSD), ásamt umboðsmanni barna, óskaði eftir nánari túlkun á reglunum og fékkst þá sú niðurstaða að einstaklingar yngri en 15 ára mættu ekki ráða sig í vinnu við að gæta barna, enda flokkist slík vinna ekki sem létt starf. Þessar reglur eru viðfangsefni barnaverndar og lúta bæði að því að vernda börnin sem taka að sér pössun og börnin sem pössunin snýr að. Voru þær meðal annars mótaðar af einstaklingum með sérfræðiþekkingu á stoðkerfi ungra barna og þroska þeirra.

Herdís, sem jafnframt er hjúkrunarfræðingur, segir að börn undir 15 ára séu enn með svo viðkvæmt stoðkerfi að það geti haft alvarlegar langtímaafleiðingar ef þau þurfa að lyfta og burðast með þunga hluti, hvað þá með annað barn, en meðalþyngd ársgamalla ungbarna er á bilinu 8-10 kílógrömm.

Þá skorti börn yngri en 15 ára þroska og einbeitingu til að geta borið ábyrgð á öðrum börnum og brugðist við ef eitthvað kemur upp á. Ábyrgðin sem sett er á þessar ungu barnfóstrur er því mikil án þess að með sanngirni sé unnt að ætlast til að þau hafi burði til að standa undir henni.

Úreltur hugsunarháttur

Herdís hefur áhyggjur af þessu. Áður fyrr þótti ekkert athugavert við að börn pössuðu börn gegn gjaldi og því líklegt að fólk sé ekki meðvitað um þá beytingu sem hefur orðið. Mörgum þykir þessi aukna meðvitund ekkert annað en aumingjaskapur en Herdís telur það úreltan hugsunarhátt.

Herdís Storgaard.
Herdís Storgaard.

Hún segir að Ísland sé eina landið sem lætur þetta enn viðgangast.

Þrátt fyrir það telur Herdís allar líkur á því að ef tilvik þar sem barn yngra en 15 ára starfaði við barnapössun væri tilkynnt til barnaverndaryfirvalda, yrði brugðist við því.

„Slík tilvik kæmu líklega einnig inn á borð Vinnueftirlitsins þar sem um er að ræða brot á vinnuverndarlöggjöf,“ segir Herdís.

Námskeið Rauða krossins

Rauði krossinn var lengi vel með svokallað barnfóstrunámskeið fyrir börn frá 12 ára aldri. Námskeiðið er enn kennt en hefur borið heitið Börn og umhverfi frá árinu 2004, eftir að Herdís vakti athygli á málinu. Herdís segir námskeiðið gott fyrir eldri systkini en að ekki sé rétt að líta á það sem vinnuvottorð til að taka að sér barnapössun gegn gjaldi.

Gunnlaugur Bragi Björnsson, upplýsingafulltrúi hjá Rauða krossinum, segir námskeiðin ekki hafa breytt áherslum sínum. Þau gangi út á að kenna ungu fólki að koma fram við börn. Þar eru kennd árangursrik samskipti, agastjórnun og umönnun, auk þess sem farið er yfir algengar slysahættur og skyndihjálp. Námskeiðin hafa verið vel sótt um allt land. Hann segist ekki hafa tilfinningu fyrir því hvort börnin sæki námskeiðin í þeim tilgangi að byrja að taka að sér pössun gegn gjaldi strax að námskeiðinu loknu.

Foreldrar bera ábyrgð

Herdís vill vekja athygli foreldra á þeirri ábyrgð sem hvílir á þeim ef eitthvað alvarlegt kemur fyrir barn, sem barnið þeirra er að passa. Væri þetta lögfræðilegt álitaefni sem lofsamlega hefur ekki reynt á hingað til en er þess virði að velta fyrir sér.

„Það sem vantar á Íslandi er að barnaverndarlög séu skilgreind betur. Það myndi hjálpa foreldrum, sem vilja allir gera vel, að átta sig á því hvað má og hvað ekki,“ bætir Herdís við.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 3. júní. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert