Göngumönnum komið til aðstoðar á Fimmvörðuhálsi

Jeppi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Fimmvörðuhálsi í kvöld.
Jeppi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Fimmvörðuhálsi í kvöld. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út fyrr í kvöld vegna tveggja göngumanna sem voru í vandræðum á Fimmvörðuhálsi. Mennirnir náðu að hringja sjálfir í Neyðarlínuna og óska eftir aðstoð, þeir voru ekki slasaðir en voru orðnir blautir og kaldir. Þeir treystu sér ekki til að halda för sinni áfram.

Nokkrir hópar frá björgunarsveitum voru sendir á Fimmvörðuháls bæði gangandi og á vélsleðum. Um klukkan 18 kom björgunarsveitarfólk að mönnunum við Heljarkamb eftir að hafa farið á jeppum og vélsleðum upp hálsinn frá Skógum.

Frá Fimmvörðuhálsi í kvöld.
Frá Fimmvörðuhálsi í kvöld. Ljósmynd/Landsbjörg

Göngumennirnir voru aðstoðaðir yfir Heljarkamb og upp Bröttufönn, þar sem vélsleðarnir voru. Þeir fengu far á sleðunum að björgunarsveitarbílum sem voru neðar á gönguleiðinni, að því er segir í tilkynningu.

Rétt fyrir klukkan sjö lögðu göngumennirnir af stað til byggða á björgunarsveitarbílum og voru allir að hressast.

Ljósmynd/Landsbjörg

Fjögur útköll í viðbót

Björgunarsveitir á landinu hafa verið kallaðar út fjórum sinnum í dag, fyrir utan útkallið á Fimmvörðuháls.

Sveitirnar voru í tvígang kallaðar út vegna fastra bíla, annars vegar nálægt Vík og hins vegar á Seyðisfirði. Björgunarsveitarfólk frá Vík dró bíl sem var fastur í á við Hjörleifshöfða á þurrt og á Seyðisfirði þurfti að koma bílstjóra til aðstoðar sem fest hafði bíl sinn í snjó á Skálanesi.

Fyrr um daginn voru björgunarsveitir einnig kallaðar út í Bolungarvík til að ná í rekald sem var á floti í innsiglingunni í höfnina. Á Húsavík sigldi björgunarsveitarfólk á björgunarbát með lækni til móts við veikan farþega sem var um borð í hvalaskoðunarbát. Öll verkefnin gengu vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert