Skútustaðahreppur samþykkti einnig sameiningu

Goðafoss í Þingeyjarsveit.
Goðafoss í Þingeyjarsveit.

Skútustaðahreppur hefur samþykkt að sameinast Þingeyjarsveit en áður höfðu Þingeyingar veitt samþykki sitt.

Alls greiddu 235 atkvæði, eða 76,5%. Þeir sem sögðu já voru 159, eða 67,7%, en 71 sagði nei, eða 30,2%.

Auðir og ómerktir seðlar voru fimm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert