Ungt fólk í bland við reynslubolta

Starri Reynisson, Ingunn Rós Kristjánsdóttir, Bjarney Bjarnadóttir og Guðmundur Gunnarsson.
Starri Reynisson, Ingunn Rós Kristjánsdóttir, Bjarney Bjarnadóttir og Guðmundur Gunnarsson. Ljósmynd/Viðreisn

Viðreisn kynnir framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fara fram 25. september.

Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Ljósmynd/Viðreisn

Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, leiðir listann. Í 2. sæti er Bjarney Bjarnadóttir kennari.

Bjarney Bjarnadóttir kennari.
Bjarney Bjarnadóttir kennari. Ljósmynd/Viðreisn

Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, situr í 3. sæti listans og Ingunn Rós Kristjánsdóttir sálfræðinemi er í 4. sæti.

Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.
Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Ljósmynd/Viðreisn


Guðmundur kveðst í fréttatilkynningu afar stoltur af því að leiða lista Viðreisnar í kjördæminu og hlakkar til kosningabaráttunnar næstu vikur og mánuði.

„Við teflum fram ungu og öflugu hugsjónafólki í bland við reynslubolta; fólki sem hefur ástríðu fyrir svæðinu og íbúum þess. Við erum staðráðin í að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum og tala fyrir brýnum framfaramálum og tímabærum áherslubreytingum á þessu mest spennandi svæði landsins. Framtíðin er björt í Norðvesturkjördæmi og með þetta mannval mun Viðreisn sannarlega láta til sín taka. Við iðum í skinninu og munum verja næstu mánuðum í að ræða við okkar heimafólk, tala fyrir áherslumálum flokksins og hlusta. Þetta verður frábært kosningasumar,“ segir Guðmundur í fréttatilkynningu frá Viðreisn.

Ingunn Rós Kristjánsdóttir sálfræðinemi.
Ingunn Rós Kristjánsdóttir sálfræðinemi. Ljósmynd/Viðreisn

Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.

Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi:

1. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Bolungarvík.
2. Bjarney Bjarnadóttir kennari. Borgarnes
3. Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Akranes.
4. Ingunn Rós Kristjánsdóttir sálfræðinemi. Ísafjarðarbær.
5. Egill Örn Rafnsson, tónlistarmaður og nemi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst. Bifröst.
6. Edit Ómarsdóttir verkefnastjóri Icelandic Startups. Akranes.
7. Pétur Magnússon húsasmiður. Ísafjarðarbær.
8. Svandís Edda Halldórsdóttir lögfræðingur. Akranes.
9. Alexander Aron Guðjónsson rafvirki. Akranes.
10. Auður Helga Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur. Ísafjarðarbær.
11. Ragnar Már Ragnarsson verkefnastjóri. Stykkishólmur.
12. Lee Ann Maginnis, kennari og lögfræðingur. Blönduós.
13. Magnús Ólafs Hansson húsgagnasmíðameistari. Akranes.
14. Ragnheiður Jónasdóttir forstöðumaður. Akranes.
15. Pétur G. Markan, fyrrv. sveitarstjóri og formaður Vestfjarðastofu. Samskiptastjóri. Hafnarfjörður.
16. Sigrún Camilla Halldórsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Ísafirði. Ísafjarðarbær.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert