Seldi 14-16 ára stelpum gras

Maðurinn hefur hlotið 4 mánaða óskilorðsbundinn dóm.
Maðurinn hefur hlotið 4 mánaða óskilorðsbundinn dóm. Reuters

Maður hefur verið dæmdur til 4 mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að selja ungum stelpum á aldrinum 14-16 ára gras og hvetja til notkunar grass og amfetamíns. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir vörslu fíkniefna í sölu og dreifingarskyni. Þetta kemur fram í dómsúrskurði Héraðsdóms Austurlands.

Þrjár stúlkur á aldrinum 14-16 ára keyptu 1 gramm af grasi af manninum og reyktu það heima hjá honum. Í íbúðinni voru á glámbekk önnur eiturlyf og tvær stelpnanna báðu um amfetamín hjá honum, sem hann leyfði þeim að fá. 

Um kvöldið voru stelpurnar hinsvegar gripnar glóðvolgar af foreldrum sínum sem höfðu samband við lögreglu. Þetta gerðist í nóvember á síðasta ári.

Lögreglan hafði þá hendur í hári mannsins og fann á heimili hans 5,14 grömm af kannabis, 1,42 grömm af amfetamíni og 98 skammta af LSD, maðurinn sagðist ekki neyta LSD sjálfur en hin fíkniefnin væru hinsvegar ætluð til eigin neyslu. 

Fyrst og fremst neytandi

Í vitnisburði mannsins kom fram að hann hafi fengið símtal frá einni af stúlkunum sem sagðist vanta gras. Hann hafi haft samúð með henni þar sem hann væri sjálfur fyrst og fremst neytandi og féllst á að láta hana hafa gras.

Þegar stelpurnar komu að sækja efnið hafi hann látið þær hafa 1 gramm en ekki vitað hve gamlar þær væru. Stelpurnar hefðu svo sagst vanar að taka amfetamín og hann taldi það því ekki sitt vandamál þó hann léti eftir þeim einn skammt af því.

Stelpurnar tvær staðhæfðu þó að þær hafi sagt manninum að þær væru á fyrsta ári í framhaldsskóla, en sú þriðja, sem enn er í grunnskóla, beið fyrir utan íbúðina á meðan samskiptin áttu sér stað.

Þar sem maðurinn á þónokkurn sakaferil að baki var ekki unnt að fallast á að skilorðsbinda refsinguna og því mun hann þurfa að afplána 4 mánuði í fangelsi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert