Tvær sýningar með sjö tilnefningar

Ekkert er sorglegra en manneskjan hlýtur sjö tilnefningar til Grímunnar …
Ekkert er sorglegra en manneskjan hlýtur sjö tilnefningar til Grímunnar 2021. Ljósmynd/Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir

Sýningarnar Ekkert er sorglegra en manneskjan eftir Friðrik Margrétar-Guðmundsson og Adolf Smára Unnarsson og Vertu úlfur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur og Héðin Unnsteinsson hljóta flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistaverðlaunanna, árið 2021 eða sjö talsins hvor sýning. Næstflestar tilnefningar hlýtur Haukur og Lilja – Opnun eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur. Gríman verður afhent í Tjarnarbíói fimmtudaginn 10. júní og sýnt beint í Ríkissjónvarpinu.

Veitt eru verðlaun í 19 flokkum auk heiðursverðlauna Sviðslistasambands Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum reyndist ekki unnt að tilnefna í flokknum Danshöfundur ársins, en verðlaunahafinn verður kosinn beinni kosningu af valnefnd Grímunnar.

Vegna yfirstandandi heimsfaraldurs hefur reglum Grímunnar verið hliðrað til annað árið í röð og því færast sýningarnar Hælið, sem frumsýnt var í september, og Fullorðin, sem frumsýnd var í byrjun árs, til næsta verðlaunaárs. Sem kunnugt var sýningunni Níu líf, sem frumsýnd var í mars 2020, ekki lögð fram til Grímunnar í fyrra þar sem ekki náðu nógu margir dómnefndarmenn að sjá hana vegna samkomubanns. Þar sem ekki reyndist unnt að sýna verkið á yfirstandandi leikári vegna samkomutakmarkana færist Níu líf yfir á næsta verðlaunaár.

Tilnefningar ársins eru sem hér segir: 

Sýning ársins 2021

  • Ekkert er sorglegra en manneskjan eftir Friðrik Margrétar Guðmundsson. Sviðsetning - Adolf Smári Unnarsson og Friðrik Margrétar Guðmundsson í samstarfi við Tjarnarbíó.
  • Haukur og Lilja – Opnun eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Sviðsetning - EP Sviðslistahópur.
  • Vertu úlfur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur og Héðin Unnsteinsson. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið.
Vertu úlfur hlýtur sjö tilnefningar til Grímunnar 2021.
Vertu úlfur hlýtur sjö tilnefningar til Grímunnar 2021. Ljósynd/Jorri


 

Leikrit ársins 2021

  • Haukur og Lilja - Opnun eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Sviðsetning - EP Sviðslistahópur.
  • The Last Kvöldmáltíð eftir Kolfinnu Nikulásdóttur.  Sviðsetning - Leikhópurinn Hamfarir í samstarfi við Tjarnarbíó. 
  • Vertu úlfur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur og Héðin Unnsteinsson. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið.

Leikstjóri ársins 2021

  • Adolf Smári Unnarsson fyrir Ekkert er sorglegra en manneskjan. Sviðsetning - Adolf Smári Unnarsson og Friðrik Margrétar Guðmundsson í samstarfi við Tjarnarbíó. 
  • María Reyndal fyrir Haukur og Lilja - Opnun. Sviðsetning - EP Sviðslistahópur.
  • Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Vertu úlfur. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið.
Haukur og Lilja - Opnun hlýtur sex tilnefningar til Grímunnar.
Haukur og Lilja - Opnun hlýtur sex tilnefningar til Grímunnar. Ljósmynd/Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir


 

Leikari ársins 2021 í aðalhlutverki

  • Björn Thors fyrir Vertu úlfur. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið.
  • Ólafur Ásgeirsson fyrir Co za poroniony pomysł – Úff hvað þetta er slæm hugmynd! Sviðsetning – Leikhópurinn PólÍs í samstarfi við Tjarnarbíó.
  • Sigurður Þór Óskarsson fyrir Veisla. Sviðsetning - Borgarleikhúsið.

Leikari ársins 2021 í aukahlutverki

  • Arnmundur Ernst Backman Björnsson fyrir Kópavogskrónika. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið.
  • Hilmir Snær Guðnason fyrir Nashyrningarnir. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið.
  • Kjartan Darri Kristjánsson fyrir Kafbátur. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið
Sýningin Kafbátur hlýtur fjórar tilnefningar til Grímunnar.
Sýningin Kafbátur hlýtur fjórar tilnefningar til Grímunnar. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

Leikkona ársins 2021 í aðalhlutverki

  • Edda Björg Eyjólfsdóttir fyrir Haukur og Lilja - Opnun. Sviðsetning – EP Sviðslistahópur.
  • Helga Braga Jónsdóttir fyrir The Last Kvöldmáltíð. Sviðsetning – Leikhópurinn Hamfarir í samstarfi við Tjarnarbíó.
  • Ilmur Kristjánsdóttir fyrir Kópavogskrónika. Sviðsetning – Þjóðleikhúsið.
  • Vala Kristín Eiríksdóttir fyrir Oleanna. Sviðsetning - Borgarleikhúsið.

Leikkona ársins 2021 í aukahlutverki

  • Ásthildur Úa Sigurðardóttir fyrir The Last Kvöldmáltíð. Sviðsetning - Leikhópurinn Hamfarir í samstarfi við Tjarnarbíó.
  • Birna Pétursdóttir fyrir Benedikt Búálfur. Sviðsetning - Leikfélag Akureyrar í samvinnu við MAk og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
  • Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir Nashyrningarnir. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið.

Leikmynd ársins 2021

  • Egill Ingibergsson og Móeiður Helgadóttir fyrir Sunnefa. Sviðsetning – Leikhópurinn Svipir í samstarfi við Tjarnarbíó.
  • Elín Hansdóttir fyrir Vertu úlfur. Sviðsetning – Þjóðleikhúsið.
  • Finnur Arnar Arnarson fyrir Kafbátur. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið.

Búningar ársins 2021

  • Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir fyrir Ekkert er sorglegra en manneskjan. Sviðsetning - Adolf Smári Unnarsson og Friðrik Margrétar Guðmundsson í samstarfi við Tjarnarbíó.
  • Júlíanna Lára Steingrímsdóttir fyrir Dagdraumar. Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn.
  • María Th. Ólafsdóttir fyrir Kardemommubærinn. Sviðsetning – Þjóðleikhúsið.


Lýsing ársins 2021

  • Björn Bergsteinn Guðmundsson og Halldór Örn Óskarsson fyrir Vertu úlfur. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið.
  • Hafliði Emil Barðason fyrir Ekkert er sorglegra en manneskjan. Sviðsetning - Adolf Smári Unnarsson og Friðrik Margrétar Guðmundsson í samstarfi við Tjarnarbíó.
  • Ólafur Ágúst Stefánsson fyrir Haukur og Lilja - Opnun. Sviðsetning – EP Sviðslistahópur.


Tónlist ársins 2021

  • Davíð Berndsen, Þórður Gunnar Þorvaldsson, Prins Póló og Snorri Helgason fyrir Veisla. Sviðsetning - Borgarleikhúsið.
  • Friðrik Margrétar Guðmundsson fyrir Ekkert er sorglegra en manneskjan. Sviðsetning - Adolf Smári Unnarsson og Friðrik Margrétar Guðmundsson í samstarfi við Tjarnarbíó.
  • Þórunn Gréta Sigurðardóttir fyrir KOK. Sviðsetning – Leikhópurinn Svartur jakki í samstarfi við Borgarleikhúsið.

Hljóðmynd ársins 2021

  • Aron Þór Arnarsson, Magnús Tryggvason Eliassen og Steingrímur Teague fyrir Kafbátur. Sviðsetning - Þjóðleikhúsið.
  • Elvar Geir Sævarsson og Valgeir Sigurðsson fyrir Vertu úlfur. Sviðsetning – Þjóðleikhúsið.
  • Stefán Már Magnússon fyrir Haukur og Lilja - Opnun. Sviðsetning – EP Sviðslistahópur.

Söngvari ársins 2021

  • Hanna Dóra Sturludóttir fyrir KOK. Sviðsetning – Leikhópurinn Svartur jakki í samstarfi við Borgarleikhúsið.
  • María Sól Ingólfsdóttir fyrir Ekkert er sorglegra en manneskjan. Sviðsetning - Adolf Smári Unnarsson og Friðrik Margrétar Guðmundsson í samstarfi við Tjarnarbíó.
  • Sveinn Dúa Hjörleifsson fyrir Die Schöne Müllerin. Sviðsetning - Sveinn Dúa Hjörleifsson í samstarfi við Tjarnarbíó. 


Dans – og sviðshreyfingar ársins 2021

  • Chantelle Carey fyrir Kardemommubærinn. Sviðsetning – Þjóðleikhúsið.
  • Eyrún Ævarsdóttir, Jóakim Kvaran, Nick Candy, Bryndís Torfadóttir og Thomas Burke fyrir Allra veðra von. Sviðsetning – Sirkuslistahópurinn Hringleikur í samstarfi við leikhópinn Miðnætti og Tjarnarbíó.
  • Unnur Eísabet Gunnarsdóttir fyrir Veisla. Sviðsetning – Borgarleikhúsið.

Barnasýning ársins 2021

  • Dagdraumar eftir Ingu Maren Rúnarsdóttur. Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn.
  • Kafbátur eftir Gunnar Eiríksson. Sviðsetning – Þjóðleikhúsið.
  • Tréð eftir Söru Marti Guðmundsdóttur og Agnesi Wild. Sviðsetning – Leikhópurinn Lalalab í samstarfi við Tjarnarbíó.

Dansari ársins 2021

  • Charmene Pang fyrir Dagdraumar. Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn.
  • Emelía Benedikta Gísladóttir fyrir Á milli stunda – Ég býð mig fram 3. Sviðsetning – Unnur Elísabet Gunnarsdóttir.
  • Inga Maren Rúnarsdóttir fyrir Ævi. Sviðsetning - Íslenski dansflokkurinn.

Útvarpsverk ársins 2021

  • Litlu jólin eftir leikhópinn Kriðpleir: Bjarni Jónsson, Árni Vilhjálmsson, Ragnar Ísleifur Bragason og Friðgeir Einarsson. Leikstjórn Leikhópurinn Kriðpleir. Sviðsetning - Útvarpsleikhúsið, RÚV.
  • Með tík á heiði eftir Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur. Leikstjórn Silja Haukdsdóttir. Sviðsetning - Útvarpsleikhúsið, RÚV.
  • Vorar skuldir eftir leikhópinn Kriðpleir: Bjarni Jónsson, Árni Vilhjálmsson, Ragnar Ísleifur Bragason og Friðgeir Einarsson. Leikstjórn Leikhópurinn Kriðpleir. Sviðsetning - Útvarpsleikhúsið, RÚV.
Sýningin The Last Kvöldmáltíð hlýtur fjórar tilnefningar til Grímunnar.
Sýningin The Last Kvöldmáltíð hlýtur fjórar tilnefningar til Grímunnar. Ljósmynd/Margreet Seema Takyar



Sproti ársins 2021

  • Ekkert er sorglegra en manneskjan - „Hér er óperuformið glætt nýju lífi þar sem samsöngur, samhljómur og sammannleg upplifun skiptir höfuðmáli. Höfundum tekst listavel að þræða saman hversdagsleg efnistök textans, dramatíska tónlistina og stílhreina framkomu flytjenda. Óvænt og fyndin nútímaópera um leitina að hamingjunni, auknum afköstum í vinnunni og eilífa þrá Íslendingsins eftir betri tíð.“
  • Kolfinna Nikulásdóttir - „Í The Last Kvöldmáltíð sjáum við frumlegan stíl og húmor. Leikskáldið brýtur viðtekin gildi og vekur upp spurningar um manneskjuna, þjóðernishyggju og þjóðrembu. Skapar sterka leikhúsupplifun með frumlegu efnisvali, djörfum og áleitnum texta.“
  • Leikhópurinn PolÍs - „Co za poroniony pomysł – Úff hvað þetta er slæm hugmynd! er verk sem lifir með manni löngu eftir að tjaldið fellur. Leikhópurinn kafar ofan í tvo menningarheima og fléttar þá saman. Afraksturinn er kvöldstund þar sem listamenn og leikhúsgestir af íslenskum og pólskum uppruna ná samhljómi þvert á uppruna og tungumál.“
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert