980 metrar malbikaðir í Kömbunum

Hringveginum um Hellisheiði lokað vegna malbikunarframkvæmdanna.
Hringveginum um Hellisheiði lokað vegna malbikunarframkvæmdanna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hellisheiði var lokað í báðar áttir í gær frá klukkan níu og fram undir kvöld. Verið var að malbika 980 metra langan kafla neðst í Kömbunum ofan Hveragerðis. Á meðan var umferðinni beint um Þrengslin, í átt til Þorlákshafnar.

Upphaflega stóð til að malbika vegkaflann á mánudag. Veður setti þó strik í reikninginn og fresta þurfti framkvæmdunum um einn dag.

Hafsteinn Elíasson, verkefnastjóri hjá Colas, sagði í gær að allt hefði gengið vel og verkefnið klárast um fjögurleytið, vel á undan áætlun, því upphaflega hafði verið stefnt að því að klára það um kvöldmatarleytið.

Hafsteinn sagði að nú væri nokkur gróska í malbikunarframkvæmdum enda hefði veðrið verið gott að undanförnu. „Um leið og þornar fer allt á fullt,“ sagði Hafsteinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert