Atvinnuleysi ekki minnkað jafn mikið í 27 ár

Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi minnki enn meira í sumar.
Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi minnki enn meira í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Atvinnulausum fækkaði um tæplega 2.400 milli mánaða á landsvísu og hefur ekki fækkað meira frá aldamótum, en fjöldatölur Vinnumálastofnunar ná ekki lengra. Atvinnuleysi mældist 9,1% í maí og lækkaði úr 10,4% í apríl. Nemur lækkunin milli mánaða 1,3% og hefur atvinnuleysi ekki lækkað um jafn mörg prósentustig milli mánaða síðan í janúar og febrúar 1994.

Þetta kemur fram í skýrslu Vinnumálastofnunar um stöðu og horfur á íslenskum vinnumarkaði.

Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu er bent á að Ásmundur Einar Daðason ráðherra hafi sett af stað sérstakt atvinnuátak undir yfirskriftinni „Hefjum störf“ í mars, og var markmiðið með átakinu að til yrðu allt að 7.000 tímabundin störf í samvinnu við atvinnulífið, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök, en þessir aðilar fá ríflegan stuðning frá hinu opinbera með hverjum nýjum starfsmanni.

„Átakið hefur farið mjög vel af stað og nú eru alls um 10,400 störf í boði hjá Vinnumálastofnun í tengslum við átakið og vel hefur gengið að ráða einstaklinga sem hafa verið lengi á atvinnuleysisskrá,“ segir í tilkynningunni.

Atvinnulausum fækkaði í öllum atvinnugreinum 

Vinnumálastofnun spáir áframhaldandi lækkun atvinnuleysis og að atvinnuleysi í júní verði á bilinu 7,3% - 7,7% og að fjöldi atvinnulausra verði mögulega í kringum 14.000 í lok mánaðar ef fram fer sem horfir. Ef sú þróun raungerist, mun fjöldi atvinnuleitenda hafa fækkað úr 20.000 frá því í lok apríl í 14.000 í lok júní.

Atvinnulausum fækkaði í öllum atvinnugreinum í maí, mest í ferðaþjónustutengdum greinum þar sem fækkunin er á bilinu 18% til 21%. Almennt atvinnuleysi var hæst á Suðurnesjum, 18,7% en þar hefur almennt atvinnuleysi verið yfir 20% frá því í október 2020 þar til nú í maí. Spáir Vinnumálastofnun enn frekari lækkun atvinnuleysis á svæðinu í júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert