Brottfarir fjórtán sinnum fleiri en í fyrra

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 14.400 í …
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 14.400 í maí. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 14.400 í maí samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða fjórtán sinnum fleiri en í maí 2020, þegar brottfarir voru um eitt þúsund. Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu.

Maí hefur því fengið mestan fjölda erlendra farþega síðan í september, þar sem fjöldi ferðamanna hefur ekki farið yfir tíu þúsund í einum mánuði síðan þá.

Langflestar brottfarir í maí má rekja til Bandaríkjamanna eða um helming (52%). Þar á eftir fylgja brottfarir Pólverja (9,1% af heild) og Þjóðverja (6,5% af heild). Brottfarir Íslendinga í maí voru um 4.400 talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær 338.

Frá áramótum hafa tæplega 32 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er 90,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega tæplega 336 þúsund. 

Brottfarir Íslendinga frá áramótum eru um 18.900 eða 78,9% færri en á sama tímabili í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert