Eitt innanlandssmit í gær

Frá bólusetningu í Laugardalshöll.
Frá bólusetningu í Laugardalshöll. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og var hann í sóttkví. Þetta kemur fram á Covid.is. 43 eru í einangrun, sem er fækkun um tvo frá því í gær. 104 eru í sóttkví, sem er fækkun um 113 frá því í gær. 3.125 eru í skimunarsóttkví. 

Tekin voru 3.812 sýni, þar af 2.108 vegna landamæraskimunar. 

Alls eru 33 í einangrun á höfuðborgarsvæðinu, 2 á Suðurlandi, 2 á Austurlandi og 1 á Suðurnesjum. 5 tilfelli eru óstaðsett. 

Einn liggur enn á sjúkrahúsi með Covid-19. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert