Íslandsstofa gerir athugasemd við auglýsingu um nekt

Norðurljós eru vinsælt efni samfélagsmiðla til að auglýsa Ísland.
Norðurljós eru vinsælt efni samfélagsmiðla til að auglýsa Ísland. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson

Síðustu ár hefur samfélagsmiðlasíðum sem auglýsa og dásama ferðir til Íslands fjölgað mikið. Meðal síðna sem deila slíku efni er Instagram-síðan Iceland Explore sem rekin er af bandaríska fyrirtækinu tripscout sem deilir alls konar ferðaefni.

Færslan birtist á Instagram-síðunni Iceland Explore.
Færslan birtist á Instagram-síðunni Iceland Explore. Skjáskot

Instagram-síðan er með tæpa 500 þúsund fylgjendur. Fyrir nokkrum dögum birtist á síðunni eftirfarandi færsla um nekt á Íslandi sem síðan fullyrðir að sé mjög eðlilegur hlutur hérlendis.

Færslunni var hins vegar eytt nokkru síðar.

Ná ekki yfirsýn yfir alla aðila sem deila efni

Að sögn Sveins Birkis Björnssonar, forstöðumanns markaðssamskipta hjá Íslandsstofu, vissi stofnun af tilgreindri færslu og hafði samband við eigendur síðunnar. Sveinn segist vita til þess að margir aðrir hafi gert það sama með athugasemdir um færsluna.

Íslandsstofa annast ákveðið eftirlit með auglýsingum varðandi Ísland en að sögn Sveins hefur stofnun einfaldlega ekki tök á því að hafa yfirsýn yfir alla þá aðila sem eru að deila efni um Ísland á samfélagsmiðlum.

„Í sumum tilfellum höfum við samband við einstök fyrirtæki þegar okkur þykir þau fara verulega af leið, en við náum ekki að halda yfirsýn,“ segir Sveinn og bendir á að Íslandsstofa vinni með erlendum ferðaheildsölum á margan hátt, meðal annars með ýmiss konar námsefni um Ísland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert