Skilagjald af bílum verði hækkað

Greiddar eru 20.000 krónur í skilagjald þegar bílum er fargað. …
Greiddar eru 20.000 krónur í skilagjald þegar bílum er fargað. Lagt er til að gjaldið verði hækkað í 30.000 krónur. mbl.is/Árni Sæberg

Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis leggur til að skilagjald af bílum verði hækkað í 30.000 krónur, en það hefur verið 20.000 krónur í um sex ár.

Þetta kemur fram í breytingatillögu við frumvarp umhverfis- og auðlindaráðherra um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald.

Í nefndaráliti meirihlutans segir að með því að hækka gjaldið skapist hvati til að úr sér gengnum ökutækjum skilað á móttökustöðvar. Samband íslenskra sveitarfélaga segi í umsögn að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu þurfi að borga a.m.k. 30.000 kr. fyrir að fjarlægja ökutæki af víðavangi. Samkvæmt gjaldskrá Vöku kosti allt að 25.000 kr. að fjarlægja ökutæki. Þá er geymslukostnaður ekki tekinn með, að því er fram kemur meðal annars í umfjöllun um þetta mál í  Morgunbaðinu í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert