Barist um oddvitasæti Miðflokksins í Suðurkjördæmi

Birgir Þórarinsson og Karl Gauti Hjaltason berjast um efsta sæti …
Birgir Þórarinsson og Karl Gauti Hjaltason berjast um efsta sæti flokksins í Suðurkjördæmi. Samsett mynd

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi, hefur tilkynnt um framboð í fyrsta sæti á lista flokksins í kjördæminu. Með því skorar hann á hólm þingmanninn Birgi Þórarinsson sem leiddi lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir síðustu kosningar og sækist áfram eftir fyrsta sætinu.

Karl Gauti var kjörinn á þing fyrir Flokk fólksins árið 2017 og var þá oddviti þess flokks í Suðurkjördæmi. Hann gekk til liðs við Miðflokkinn á kjörtímabilinu. Valið verður á lista Miðflokksins með uppstillingu á næstu vikum. Fimm manns skipa kjörnefnd, þrír voru kjörnir af kjördæmafundi og tveir af stjórn flokksins.

„Ég tel að ég hafi mjög góðan hljómgrunn í kjördæminu og ég er búinn að vera mikið á ferðinni í kjördæminu allt kjörtímabilið,“ segir Karl Gauti.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert