Listi Sjálfstæðisflokksins í S-kjördæmi samþykktur

Mynd af efstu sætum listans. Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi.
Mynd af efstu sætum listans. Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi. Ljósmynd/Aðsend

Listi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi var í dag samþykktur á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem haldinn var í Grindavík.

Prófkjör flokksins í Suðurkjördæmi fór fram 29. maí og byggir listinn á heildartillögu 21 manns kjörnefndar.

Listinn í heild sinni:

1. Guðrún Hafsteinsdóttir markaðsstjóri, Hveragerði.

2. Vilhjálmur Árnason alþingismaður, Grindavík.

3. Ásmundur Friðriksson alþingismaður, Reykjanesbæ.

4. Björgvin Jóhannesson fjármálastjóri, Svf. Árborg.

5. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, meistaranemi í lögfræði við HÍ, Eyjafjöllum.

6. Jarl Sigurgeirsson, skólastjóri Tónlistarskóla Vestmannaeyja, Vestmannaeyjum.

7. Eva Björk Harðardóttir oddviti, Skaftárhreppi.

8. Guðbergur Reynisson framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ.

9. Stefanía Anna Sigurjónsdóttir þroskaþjálfi, Höfn í Hornafirði.

10. Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, uppeldisfræðingur, flugfreyja og matarbloggari, Reykjanesbæ.

11. Einar Jón Pálsson, stöðvarstjóri og forseti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar, Suðurnesjabæ.

12. Arndís Bára Ingimarsdóttir lögfræðingur, Vestmannaeyjum.

13. Grétar Ingi Erlendsson, markaðs- og sölustjóri og bæjarfulltrúi í Svf. Ölfusi, Þorlákshöfn.

14. Birgitta Hrund Ramsay Káradóttir, skjalastjóri og bæjarfulltrúi, Grindavík.

15. Sveinn Ægir Birgisson, kennaranemi og varabæjarfulltrúi í Svf. Árborg, Selfossi.

16. Hulda Gústafsdóttir, hestakona og framkvæmdastjóri Hestvits ehf., Rangárþingi ytra.

17. Baldur Þórir Guðmundsson viðskiptafræðingur, Keflavík.

18. Jónas Logi Ómarsson, matreiðslumeistari og yfirbryti á Herjólfi, Vestmannaeyjum.

19. Alda Agnes Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Einhamars Seafood, Grindavík.

20. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, Rangárþingi eystra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert