Um 168 milljónir króna í bætur til þolenda afbrota

Kynning á skýrslu nefndar um greiðslu sanngirnisbóta. Halldór Þormar Halldórsson …
Kynning á skýrslu nefndar um greiðslu sanngirnisbóta. Halldór Þormar Halldórsson t.v. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það hefur verið ansi snörp fjölgun umsókna síðustu ár, sérstaklega síðustu þrjú ár,“ segir Halldór Þormar Halldórsson, ritari bótanefndar vegna þolenda afbrota.

Ríkissjóður greiddi alls 167.714.879 krónur í bætur til þolenda afbrota á síðasta ári vegna mála sem komu til afgreiðslu bótanefndar ríkisins. Það er litlu minna en árið áður en þá greiddi ríkið um 178 milljónir í bætur vegna þessa. Fjöldi umsókna um bætur hefur hins vegar aldrei verið meiri en í fyrra.

„Á liðnum árum hefur fjöldi umsókna aukist verulega og á árinu 2020 bárust 508 umsóknir, en það var í fyrsta skipti sem fjöldi þeirra fór yfir 500. Nefna má að árið 2005 bárust um 200 umsóknir til nefndarinnar. Frá árinu 2016 hefur verið næsta stöðug fjölgun þeirra mála sem berast nefndinni,“ segir Halldór í dag í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert