Skýrari umgjörð um eineltismál

Einn af þeim þáttum sem haft geta áhrif á vellíðan …
Einn af þeim þáttum sem haft geta áhrif á vellíðan nemenda í skólum er einelti. mbl.is/ThinkstockPhotos

Alþingi samþykkti á dögunum breytingu á lögum um grunn- og framhaldsskóla sem miða að því að styrkja lagastoð og heimildir fagráðs eineltismála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Í lögunum er meðal annars kveðið á um skýrari heimildir fagráðs eineltismála til þess að vinna með persónuupplýsingar og heimild til að takmarka aðgang aðila að gögnum ef talið er að slíkt geti skaðað hagsmuni barns, til samræmis við ákvæði barnaverndarlaga. Þar að auki er fjallað um skipan ráðsins og hæfniskröfur sem gerðar eru til þeirra sem þar eiga sæti.

Fagráð eineltismála starfar nú bæði fyrir grunn- og framhaldsskóla en vísa má eineltismálum til ráðsins þegar ekki finnst fullnægjandi lausn á þeim innan skóla eða sveitarfélags. Ráðið veitir álit sín á grundvelli gagna og upplýsinga sem því berast og leiðbeinir aðilum skólasamfélagsins, svo sem foreldrum, um hvernig vinna megi að úrlausn mála með hagsmuni barna að leiðarljósi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert