Bjartur dagur í dag

Búast má við björtum degi í dag.
Búast má við björtum degi í dag. mbl.is/Sigurður Unnar Ragnarsson

Búast má við björtum degi í mörgum landshlutum framan af degi í dag, en annars skýjað með köflum. Austlæg eða norðlæg átt, 5 til 13 metrar á sekúndu, en hvassara með suðausturströndinni síðdegis. 

Spáð er stöku skúrum eða éljum norðaustan til á landinu og dálítilli rigningu á Suðausturlandi. Dregur síðan úr vindi og úrkomu þar á morgun. Hiti frá 3 stigum í innsveitum norðaustanlands, upp í 11 stig suðvestan til, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Norðaustan 5-13 m/s, hvassast með austurströndinni. Dálítil rigning suðaustan- og austanlands, úrkomulítið um landið norðanvert en þurrt suðvestan til. Hiti frá 3 stigum í innsveitum fyrir norðan, upp í 11 stig syðst.

Á fimmtudag (lýðveldisdaginn):
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað að mestu á landinu og dálitlar skúrir á víð og dreif. Hiti 3 til 10 stig, mildast sunnanlands.

Á föstudag:
Suðaustlæg eða breytileg átt, dálítil rigning um sunnan- og suðaustanvert landið en þurrt að kalla norðan til. Hiti 7 til 12 stig.

Á laugardag:
Norðlæg átt og vætusamt en þurrt að mestu um vestanvert landið. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:
Norðvestlæg átt og rigning norðan- og austanlands, en bjartara yfir og þurrt að kalla sunnan og vestan til. Áfram svipaður hiti.

Á mánudag (sumarsólstöður):
Útlit fyrir vestlæga átt og minnkandi úrkomu norðanlands. Hlýnar.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert