Átta í framboði fyrir Framsókn í Suðurkjördæmi

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sækist einn eftir fyrsta …
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sækist einn eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í haust. mbl.is/Árni Sæberg

Prófkjör Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fer fram á morgun, laugardag. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sækist einn eftir fyrsta sætinu en sjö sækjast eftir ýmist 2., 3., 2.-4., 3.-4. eða 3.-5. sæti. 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst á þriðjudag og segir Magnea Björnsdóttir, formaður kjörstjórnar, að þátttaka hafi farið virkilega vel af stað. Enn er hægt að greiða atkvæði utan kjörfundar í dag og er kosið á Höfn, Selfossi, Vestmannaeyjum og Reykjanesbæ. Kjörstaði á laugardaginn má sjá á Facebook-síðunni „Framsókn í Suðurkjördæmi“ og á heimasíðu flokksins.  

Í framboði eru:

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, Hrunamannahreppi – sækist eftir 1. sæti
  • Jóhann Friðrik Friðriksson, Reykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti
  • Silja Dögg Gunnarsdóttir, Reykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti
  • Daði Geir Samúelsson, Hrunamannahreppi – sækist eftir 2.- 4. sæti
  • Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Árborg – sækist eftir 3. sæti
  • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Reykjanesbæ – sækist eftir 3.- 4. sæti
  • Njáll Ragnarsson, Vestmannaeyjum – sækist eftir 3.- 4. sæti
  • Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, Vík í Mýrdal – sækist eftir 3.- 5. sæti
Tveir sitjandi þingmenn gefa kost á sér í prófkjöri Framsóknarflokksins …
Tveir sitjandi þingmenn gefa kost á sér í prófkjöri Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer um helgina. Ljósmynd/Framsóknarflokkurinn

Talning fer fram á sunnudag og verða úrslit kunngjörð milli klukkan 16 og 17 á Hótel Selfossi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert