Metfjöldi brautskráninga frá Háskóla Íslands

Frá brautskráningu Háskóla Íslands.
Frá brautskráningu Háskóla Íslands. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Yfir 2.500 nemendur Háskóla Íslands brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi á laugardag. Aldrei hafa fleiri nemendur verið brautskráðir. Líkt og á síðasta ári verður brautskráning með sérstöku sniði vegna sóttvarnatakmarkana. 

Brautskráningarathafnir verða tvær og fara fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Einungis kandídatar, sem taka á móti brautskráningarskírteinum sínum, verða við athafnirnar. Bein útsending verður frá báðum athöfnum fyrir aðstandendur, vinir og aðra áhugasama. 

Á fyrri brautskráningarathöfninni, sem hefst kl. 10, fá kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá félagsvísindasviði og verkfræði- og náttúruvísindasviði útskriftarskírteini sín. Samtals brautskrást 736 frá félagsvísindasviði og 287 frá ferkfræði- og náttúruvísindasviði.

Seinni athöfnina, sem hefst kl. 13.30, sækja kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá heilbrigðisvísindasviði, hugvísindasviði og menntavísindasviði. Þar brautskráist 671 frá heilbrigðisvísindasviði, 298 frá hugvísindasviði og 556 frá menntavísindasviði.

Samanlagt verður 1.621 kandídat brautskráður úr grunnnámi að þessu sinni og 927 úr framhaldsnámi. Alls munu því 2.548 kandídatar útskrifast frá Háskóla Íslands á laugardag en það er langmesti fjöldi sem skólinn hefur brautskráð í einu lagi. Til samanburðar voru kandídatarnir 2.050 í fyrra.

Bríet og Jónas Sigurðsson stíga á stokk 

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, mun flytja ávarp við athöfnina og þá munu Ingvar Þóroddsson, BS í rafmagns- og tölvunarverkfræði, og Valdís Huld Jónsdóttir, MS í iðnaðarlíftækni, ávarpa gesti fyrir hönd brautskráningarkandídata á athöfnunum tveimur. Tónlistarkonan Bríet stígur á stokk á fyrri athöfninni og skemmtir gestum ásamt Rubin Pollock og á þeirri seinni treður Jónas Sigurðsson upp ásamt Ómari Guðjónssyni. 

Háskóli Íslands brautskráði 467 kandídata í febrúar síðastliðnum og því hafa alls 3.015 útskrifast frá skólanum það sem af er ári.

Í hópi brautskráningarkandídata nú eru fyrstu nemendurnir sem ljúka meistaranámi í iðnaðarlíftækni, sem Háskóli Íslands býður upp á í samstarfi við lyfjafyrirtækið Alvotech. Jafnframt tekur fyrsti nemandinn sem lýkur meistaranámi í líftölfræði við brautskráningarskírteini sínu og sama má segja um fyrsta nemandann með meistarapróf í faraldsfræði. Enn fremur ljúka fyrstu nemendurnir viðbótardiplómanámi í hagnýtri skjalfræði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert