Ragnar rauk inn á topp tíu

Ragnar Jónasson.
Ragnar Jónasson. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta er elsti og áhrifamesti sölulisti Bretlands og allir höfundar vilja komast inn á hann. Það ætti að segja allt sem segja þarf um það hvílíkur árangur þetta er hjá Ragnari Jónassyni og full ástæða til að óska honum til hamingju,“ segir Pétur Már Ólafsson, bókaútgefandi í Bjarti/Veröld.

Glæpasagan Þorpið eftir Ragnar Jónasson fer rakleitt í fyrstu viku í tíunda sæti metsölulista Sunday Times í Bretlandi yfir innbundin skáldverk en listinn er birtur nú um helgina. Pétur kveðst telja að Ragnar sé fyrsti íslenski höfundurinn sem komi bók inn á topp tíu á metsölulista Sunday Times.

Á toppi listans trónir ný spennusaga sem Bill Clinton og James Patterson skrifa í sameiningu og kom út í vikunni. Ragnar er ekki ókunnur metsölulistum heima og erlendis og er þess skemmst að minnast að í fyrra átti hann um tíma þrjár af mest seldu kiljum Þýskalands, Dimmu, Drunga og Mistur, auk þess sem Dimma var þriðja mest selda kilja ársins 2020 þar í landi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert