Farin af stað í Cyclothon

Á myndinni frá vinstri: Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Magnús Lárusson, Jón …
Á myndinni frá vinstri: Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Magnús Lárusson, Jón Árni Ólafsson, Sindri Bergmann, Birgir Árnason, Ingimar Guðmundsson, Árni Már Rúnarsson og Ágúst Ævar Gunnarsson.

Í dag hófst hjólreiðakeppnin Síminn Cyclothon sem lýkur 25. júní næstkomandi. Hjólað verður hringinn í kringum landið og í leiðinni safnað áheitum til styrktar Landvernd. Team RECON ákvað að gera gott betur og hjóla til styrktar Krafti og vera með sína eigin áheitasöfnun.

„Við, vinirnir og samstarfsaðilar, ákváðum að skrá okkur til leiks og hjóla hringinn í kringum landið en langaði að safna fyrir Kraft og það góða starf sem þar er unnið. Það eru nokkrir okkar búnir að taka þátt í Cyclothon-inu áður, en aðrir, þar á meðal ég, eru með minni reynslu. En við erum búnir að vera að æfa af „krafti“ síðustu mánuði og ég held að reynslan sé hægt og rólega að smitast yfir á okkur hina. Sama hvað, við stefnum aðallega á að gera þetta skemmtilegt,“ er haft eftir Aðalsteini Hauki Sverrissyni, forsprakka liðsins í  tilkynningu frá Krafti. 

Aðalsteinn segir enn fremur að þeir hafi fylgst með starfi Krafts og viti að þeim fjármunum sem muni safnast í þeirra áheitasöfnun verði vel varið.

Hægt verður að heita á Team RECON með því að leggja inn á bankareikninginn: 0370-13- 006736 kt. 531114-0430 eða á Karolina Fund

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert