Lífshættulegt að stíga út á hraunið

Eldgosið í Geldingadölum er fallegt en hættulegt.
Eldgosið í Geldingadölum er fallegt en hættulegt. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á Suðurnesjum vekur athygli á því á Facebook-síðu sinni að lífshættulegt sé að stíga út á hraunið við eldgosið í Geldingadölum. „Farið því aldrei út á hraunið,“ segir í færslu lögreglunnar. 

Nú hefur eldgosið í Geldingadölum staðið yfir í þrjá mánuði, vel á annað hundrað þúsund manns hafa notið þess að geta fylgst með eldgosinu í miklu návígi og það í lítilli fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Viðbragðsaðilar hafa frá upphafi goss lagt sig alla fram um að koma í veg fyrir að slys verði á fólki sem heimsækir gosstöðvarnar, með leiðbeiningum ýmist á gosstöðvunum eða í gegnum frétta- og samfélagsmiðla. Gönguleiðir hafa verið stikaðar og lagfærðar, hættuleg svæði afmörkuð og grannt fylgst með hraunrennsli og gasmengun sem fólki gæti stafað hætta af,“ segir í færslu lögreglunnar. 

Hættulegur staður til að vera á

Þar er brýnt fyrir fólki að eldgosasvæði séu hættulegur staður til að vera á. 

„Almenn skynsemi ætti því að segja fólki að nauðsynlegt er að gæta varúðar, hlusta á og fara eftir ráðleggingum viðbragðsaðila og vísindamanna. Sem betur fer hafa ekki orðið mjög alvarleg slys á fólki, þó að stundum hafi ekki mátt miklu muna.“

Undanfarið hefur borið á því að fólk gangi út á hraunið á gosstöðvunum. 

„Ekki þarf að fjölyrða um hversu hættulegt athæfi þetta er. Algjörlega er óvíst hvort nýstorknað yfirborð hrauns haldi og undir því getur verið rauðglóandi kvika. Þá er rétt að benda á að fólk er með þessu að setja björgunaraðila í algjörlega vonlausa stöðu fari hlutirnir á versta veg,“ segir í færslu lögreglunnar og jafnframt: 

Maðurinn má sín lítils gagnvart náttúruöflunum sem þarna eru á ferðinni, ef eitthvað fer úrskeiðis. Á gossvæðinu er hættan raunveruleg og þarna er fólk statt í raunveruleikanum, en ekki fyrir framan tölvu þar sem hlutirnir ganga út á sýndarveruleika og hægt er að kaupa sér líf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert