Þrefalt fleiri kvenstjórnendur þurft að sanna sig

Þrefalt fleiri kvenstjórnendur en karlstjórnendur upplifa að hafa þurft að sanna sig í starfi meira en aðrir. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar Kynin og vinnustaðurinn, sem birt var í dag. Viðhorfskönnunin var netkönnun sem send var á rúmlega 5.000 einstaklinga sem starfa hjá aðildarfélögum Viðskiptaráðs Íslands og fengust rúmlega 2.000 svör til baka frá fjölda fyrirtækja á tímabilinu 26. mars til 16. apríl 2021.

Kynin og vinnustaðurinn er samvinnuverkefni Empower, Gallup, Háskóla Íslands og Viðskiptaráðs Íslands. Þá er markmið að greina hvort munur sé á upplifun kynja á ýmsum þáttum tengdum menningu vinnustaðarins.

Þá kemur fram í niðurstöðunum að fleiri konur upplifa að það hafi verið talað niður til þeirra á vinnustaðnum, líkurnar á að talað sé niður til kvenna virðast meiri þegar þær eru stjórnendur. Lítill sem enginn munur er milli karla, hvort sé um er að ræða starfsfólk eða stjórnendur.

Skjáskot úr skýrslu könnunarinnar.

Enn fremur kemur í ljós í niðurstöðum rannsóknarinnar að fleiri kvenstjórnendur en karlstjórnendur upplifa að dómgreind þeirra og hæfni sé dregin í efa og konur eru líklegri en karlar til að upplifa að notaður sé grófur talsmáti og óviðeigandi brandarar.

14 sinnum fleiri kvenstjórnendur en karlstjórnendur telja sig bera ábyrgð á heimilinu

Þegar spurt er um ábyrgð kynja til heimilisins þá telja 6 sinnum fleiri konur en karlar sig bera ábyrgð á heimilinu að meirihluta eða öllu leyti og bilið eykst þegar kemur að stjórnendum, 14 sinnum fleiri kvenstjórnendur en karlstjórnendur telja sig bera ábyrgð á heimilinu að meirihluta eða öllu leyti.

Skjáskot úr skýrslu könnunarinnar.

Í rannsókninni voru kynin spurð út í hversu mikinn stuðning viðkomandi fær frá næsta yfirmanni til að sinna starfi betur, þá við að leysa verkefni og við framgang eða aukna ábyrgð í starfi við að samræma vinnu og einkalíf. Þá sýna niðurstöður að kvenstjórnendur virðast veita meiri stuðning til starfsfólks við að samræma vinnu og einkalíf.

Færri körlum en konum finnst þeir fá stuðning frá yfirmanni við að samræma vinnu og einkalíf, en þó meiri frá kvenstjórnenda. Konur telja sig fá sama stuðning óháð kyni stjórnenda. Þá telja karlar sig fá meiri stuðning frá kvenstjórnenda en karlstjórnenda.

„Virðist vera kerfisbundinn kynjamunur“

„Niðurstöðurnar eru áhugaverðar og endurspegla vel þær áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir í menningu á vinnustöðum þar sem upplifun kynja er ólík. Við erum á réttri leið en það virðist vera kerfisbundinn kynjamunur í menningu og enn mikið verk að vinna,“ segir Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, stofnandi Empower, í tilkynningu. 

„Það virðist vera meiri fórnarkostnaður fyrir konur en karla að gerast stjórnendur á vinnumarkaði þar sem að þær bera frekar ábyrgð á heimilisstörfum og mæta frekar áskorunum í menningu.  Það er von okkar sem standa að rannsókninni að stjórnendur í atvinnulífinu geta nýtt sér þessar niðurstöður til að bæta stöðu kynjanna innan síns fyrirtækis.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert