Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn kynnir fyrstu oddvita

Guðmundur Franklín Jónsson er oddviti í Reykjavík norður.
Guðmundur Franklín Jónsson er oddviti í Reykjavík norður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Uppstillingarnefnd Frjálslynda lýðræðisflokksins hefur skipað tvo nýja oddvita. Magnús Guðbergsson öryrki í Suðurkjördæmi og Björgvin Egil Vídalín Arngrímsson eftirlaunaþegi í Norðausturkjördæmi.

Fyrir voru þeir Guðmundur Franklín Jónsson hagfræðingur oddviti í Reykjavík norður og Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur oddviti í Reykjavík suður.

Oddvitar Norðvesturkjördæmis og Suðvesturkjördæmis verða kynntir um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert