Náðu fimm ára kjarasamningi við ÍSAL

Kjarasamningurinn gildir frá 1. júní 2021 til loka árs 2026 …
Kjarasamningurinn gildir frá 1. júní 2021 til loka árs 2026 og því langur samningstími eftir að gerðir voru tveir stuttir samningar á síðasta ári mbl.is/Ómar

Nýr kjarasamningur milli stéttarfélaga sem eiga aðkomu að kjarasamningi við ÍSAL í Straumsvík var undirritaður í gærkvöld en fyrri samningur rann út þann 1. júní síðastliðinn.

Kjarasamningurinn gildir frá 1. júní 2021 til loka árs 2026 og er því um langan samningstíma að ræða. Félag vélstjóra og málmtæknimanna (VM) segir það kærkomið eftir að gerðir voru tveir stuttir samningar á síðasta ári. Nú fær starfsfólk meiri fyrirsjáanleika hvað launakjör varðar og ÍSAL stöðugra rekstrarumhverfi.

Starfsfólk ISAL mun greiða atkvæði um kjarasamninginn á næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert