Lögregla leitar vitna að líkamsárás á Akureyri

Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar vitna að líkamsárás sem átti …
Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar vitna að líkamsárás sem átti sér stað laugardaginn 19. júní. Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Norðurlandi eystra óskar eftir upplýsingum frá vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á tjaldsvæði Bílaklúbbs Akureyrar, í kringum miðnætti að kvöldi laugardagsins 19. júní. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu embættisins.

Einnig er tekið fram í tilkynningunni að nálægt brotavettvangi hafi staðið stór svört rúta. Lögregla óskar eftir því að þeir sem eitthvað um málið vita hafi samband sem fyrst í síma 444-2800, þar sem upplýsingar verða teknar niður. „Öll vitneskja um málið er vel þegin,“ segir einnig í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert