Þórólfur heldur með Englandi og Danmörku

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og samherjarnir Harry Kane og Jack Grealish …
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og samherjarnir Harry Kane og Jack Grealish í enska landsliðinu. Samsett mynd

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir kveðst aðspurður hafa haft tíma til að fylgjast með Evrópumótinu í knattspyrnu undanfarna daga, samhliða störfum sínum í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. 

Hann segist ekki brjóta hefðir og venjur, og heldur með Englendingum í ár, sem hann segist bera sterkar taugar til. 

„Já, já, ég hef náð því,“ segir Þórólfur spurður hvort hann hafi náð að fylgjast eitthvað með mótinu.

„Þetta er bara mjög jöfn keppni og mörg spennandi lið,“ segir hann svo og má merkja ákveðið embættismannalegt afstöðuleysi í röddu hans. 

Raheem Sterling, leikmaður enska liðsins, fagnar marki sínu gegn Króötum …
Raheem Sterling, leikmaður enska liðsins, fagnar marki sínu gegn Króötum í riðlakeppni EM. Landi hans, Harry Kane, fylgir í humátt. AFP

England og Danmörk í uppáhaldi

Þórólfur segir þó léttur að hann haldi vissulega með Englandi en svo virðist sem hann hafi ekkert sérstaklega mikla trú á sínum mönnum.

„Maður ber alltaf ákveðnar taugar til Englendinga, þó að þeir sýni aldrei neitt á svona mótum og nái aldrei að klára málin.“

Svo segir Þórólfur að hann haldi upp á danska liðið og lætur fleyg orð falla:

„Hjartað slær auðvitað með Dönum, þetta hefur auðvitað verið tilfinningaþrungin leið fyrir þá. Þannig að ég vona að þeim gangi vel.“

Leikmenn danska liðsins mynda varnarvegg um félaga sinn, Eriksen. Fótboltasamfélagið …
Leikmenn danska liðsins mynda varnarvegg um félaga sinn, Eriksen. Fótboltasamfélagið stóð þarna á öndinni og óttaðist um afdrif kappans, en sem betur fer er Eriksen á batavegi og Danir komnir áfram upp úr sínum riðli. AFP

Hjarta Christians Eriksens, besta liðsmanns Danmerkur, stöðvaðist undir lok fyrri hálfleiks í fyrsta leik þeirra á mótinu, eins og fór vart framhjá nokkrum fótboltaáhugamanninum. Þar öttu Danir kappi við Finna og lutu í lægra haldi 1:0 þegar leiknum var áfram haldið eftir að langt hlé hafði verið gert. 

„Svo eru náttúrlega bara frábær lið þarna eins og Frakkar og Portúgalar, Ítalir, Belgar. Ég meina þetta verður bara gríðarlega spennandi,“ segir Þórólfur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert