Hraunið nái að Suðurstrandarvegi á næstu vikum

Horft yfir Nátthaga.
Horft yfir Nátthaga. Ljósmynd/Almannavarnir

Í gær lauk framkvæmdum við leiðigarð sem er syðst við Geldingadali. Sá garður beinir hraunrennsli úr Geldingadölum frá Nátthagakrika og áfram niður í Nátthaga. Þessi aðgerð er liður í því að seinka því, eins og hægt er, að hraun fari að renna í Nátthagakrika. 

Í tilkynningu frá almannavarnadeild kemur fram að frá Nátthagakrika opnist landslagið meira í átt að mikilvægum innviðum sem eru vestan og norðan við svæðið. Þegar framkvæmdir hófust stóð tæpt að hægt væri að klára garðinn vegna hraunrennslis á svæðinu. Eftir að það hætti var hægt að klára framkvæmdina eins og lagt var upp með og er garðurinn nú fimm metra hár og 200 metra langur. 

Miðað við núverandi virkni í eldgosinu mun hraunrennsli, að öllum líkindum, ná niður á Suðurstrandarveg í gegnum Nátthaga á næstu vikum. 

Hraun streymir niður í Nátthaga.
Hraun streymir niður í Nátthaga. mbl.is/Einar Falur.

Í kjölfar samráðs við hagsmunaaðila hefur verið ákveðið að setja upp lágan varnargarð í dalsmynni Nátthaga. Garðurinn verður 3-5 metra hár og er honum ætlað að seinka framrás hrauns úr Nátthaga niður að Suðurstrandarvegi og Ísólfsskála. 

Með þessari ráðstöfun verður hægt að safna meira af hrauni í Nátthaga að því er fram kemur í tilkynningu. Þannig verður vonandi hægt að halda Suðurstrandarvegi opnum nokkru lengur en í stefndi. Um leið seinka hraunrennsli yfir ljósleiðara sem er á þessum slóðum og jörðina Ísólfsskála.

Að óbreyttu mun hraunrennslið á endanum fara yfir garðinn og fela ummerki hans á leið sinni til sjávar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert