Stormur norðvestan til en 24 stiga hiti á Austurlandi

Hvassviðri er spáð í dag.
Hvassviðri er spáð í dag. mbl.is/Jónas Erlendsson

Í dag verður allhvöss eða hvöss suðvestanátt, en hvassviðri eða stormur norðvestan til á landinu og austur í Eyjafjörð. Einnig hvessir verulega allra syðst á landinu sem og í Öræfasveit. Þá verða hviður, einkum þar sem vindur þrengir sér yfir eða fyrir fjöll, allt að 40 metrar á sekúndu. 

Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands að húsbílar, hjólhýsi og önnur ökutæki sem taka á sig mikinn vind eigi ekki erindi í svona veður. 

Skýjað verður og rigning á köflum um landið vestanvert, en víða léttskýjað eystra. Þá verður hiti á bilinu 8 til 24 stig, svalast á Vestfjörðum, en hlýjast á Austurlandi og ekki ólíklegt að íbúar og gestir á Héraði upplifi þessi hlýindi. 

Gular og appelsínugular viðvaranir vegna veðurs eru í gildi fyrir daginn í dag og er fólk hvatt til að kynna sér þær vel og haga ferðum sínum í samræmi við þær. Eins er gott að fylgjast með rauntímaupplýsingum á vef Vegagerðarinnar. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Vestlæg átt, 5-13 m/s og léttskýjað, en líkur á þoku við suðvestur- og vesturströndina. Hiti 10 til 21 stig, hlýjast austanlands.

Á sunnudag:
Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Bjart með köflum en þykknar upp um landið vestanvert eftir hádegi og dálítil rigning norðvestan til um kvöldið. Hiti 8 til 19 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á mánudag:
Suðvestlæg átt og að mestu léttskýjað austanlands, en dálítil rigning á vestanverðu landinu um kvöldið. Heldur hlýrra.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðlæg átt og rigning með köflum, en þurrt að mestu og hlýtt á austanverðu landinu.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir hæga suðvestlæga eða breytilega átt. Skýjað vestast, en annars víða léttskýjað. Fremur hlýtt í veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert