Ósammála um hver eigi að hafa eftirlit með NEL

Skúli Þór Gunnsteinsson og Jón Þór Ólafsson
Skúli Þór Gunnsteinsson og Jón Þór Ólafsson

Formaður NEL og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eru ekki á sama máli um það hvort NEL sé á forræði stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eða ekki.  

Jón Þór Ólafsson, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis vill að nefndin taki fyrir  ný­leg­an úr­sk­urð NEL, nefnd­ar um eft­ir­lit með lög­reglu, sem honum þykir lykta af pólitík. Það er þó ekki ljóst hvort nefndin geti gert það en hingað til hef­ur stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd aðeins haft eft­ir­lit með ráðherr­um.

Jón Þór telur rétt að slíkur fundur yrði opinn fjölmiðlum svo hægt verði að vitna í orð gesta enda er það, að hans mati, forsenda þess að eftirlitshlutverk Alþingis virki.

Nefndin fundaði í dag og vildi ekki taka málið til efnislegrar meðferðar fyrr en það lægi fyrir að störf NEL væru á forræði nefndarinnar. Það kemur til greina að NEL heyri frekar undir allsherjarnefnd eins og önnur mál tengd lögreglu.

Skúli Þór Gunnsteinsson, formaður NEL segir það í góðu lagi hans vegna að ræða við þingnefndir eins og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, um verklag NEL. Hinsvegar verði einstök mál ekki rædd og þá sérstaklega ekki á opnum fundum, enda sé það einfaldlega óheimilt.

Lögfræðingar þingsins vinna nú að því að túlka lögin sem ekki hefur reynt á til þessa, um hvaða þingnefnd skuli hafa eftirlit með NEL. Jón Þór telur eðlilegt að forræði NEL liggi hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd en Skúli Þór hallast frekar að því að NEL heyri undir allsherjarnefnd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert