Hraun rennur á ný í Geldingadölum

Hraun skríður fram í gígnum að nýju.
Hraun skríður fram í gígnum að nýju. Ljósmynd/Jóhannes Jóhannesson

Hraun sést nú flæða á nýjan leik í Geldingadölum. Fyrr í dag var eins og slokknað væri í aðalgíg gosstöðvanna og töldu jarðfræðingar að merkja mætti upphaf endaloka gossins. 

Stuttu eftir að Gísli Gíslason frá Heli Austria Iceland flaug yfir gosstöðvarnar flaug annar þyrluflugmaður, Jóhannesson Jóhannesson hjá Helo, yfir þær. Gísli sendi mbl.is mynd af gráum og, að því er virtist, kulnuðum gíg, en Jóhannes sendi svo myndir af gíg þar sem hraun var tekið að renna á nýjan leik.

Það er því ljóst að eldgosinu í Geldingadölum er ekki enn lokið, þó að jarðvísindamenn virðist vissir í sinni sök um að mögulega sé endirinn að nálgast. Hegðun gossins hefur verið ansi breytileg undanfarna daga og ætti því varla að koma á óvart ef skíðloga mun í gígnum í kvöld – hver veit?

Tvennt sem kemur til greina

Magnús Tumi Guðmunds­son, jarðeðlis­fræðing­ur hjá Há­skóla Íslands, sagði við mbl.is fyrr í dag að mögu­lega væri komið að enda­lok­um goss­ins. Alla­vega væri minna af kviku en áður.

„Þessi hegðun núna síðustu daga pass­ar al­veg við það að við erum að sjá enda­lok­in, eða byrj­un­ina á enda­lok­un­um. Það er að minnka fram­boðið á kviku.

Það er tvennt sem kemur til greina; annaðhvort er kvik­an að leita sér að leið ein­hvers staðar ann­ars staðar á svæðinu eða fram­boð af kviku er að minnka. Að magnið í upp­tök­un­um sé farið að minnka vegna þess að það er al­veg kyrrð,“ seg­ir Magnús Tumi og bæt­ir við:

„Þetta ber öll ein­kenni þess að það sé að farið að draga mikið úr gos­inu, en það er engu hægt að slá föstu ennþá og þetta kem­ur allt í ljós. En þetta lík­ist því að nú sé þrýst­ing­ur að minnka neðanj­arðar og fram­boð á kviku að verða búið.

Ef það er raun­in erum við að horfa upp á enda­lok­in, eða byrj­un­ina á enda­lok­un­um. Það er of snemmt að segja til um þetta, við verðum bara að sjá hvað ger­ist.“

Magnús Tumi Guðmunds­son, jarðeðlisfræðingur hjá Háskóla Íslands.
Magnús Tumi Guðmunds­son, jarðeðlisfræðingur hjá Háskóla Íslands. Ljósmynd/Almannavarnir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert