Hættustigi vegna vatnavaxta aflétt

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur ákveðið …
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur ákveðið að aflýsa hættustigi vegna vatnavaxta í ám og vötnum á svæðinu. Ljósmynd/Lögreglan

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur ákveðið að aflétta hættustigi vegna vatnavaxta í ám og vötnum á Norðurlandi eystra. Gríðarlegir vatnavextir voru á svæðinu í síðustu viku, en það er ekki lengur raunin og því er óhætt að aflétta hættustiginu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Unnið er að lagfæringum á þeim vegum og brúm sem skemmdust.

Hættustig var sett á 1. júlí sl. vegna mikilla vatnavaxta í ám og vötnum á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert