Kominn til Íslands eftir ferðalag í farbanni

Kristinn Magnússon

Rúmenski maðurinn sem er grunaður um að hafa orðið Daníel Eiríkssyni að bana er kominn til landsins. Þetta staðfesti Mar­geir Sveinsson, aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is

DV greindi fyrst frá en Margeir vildi ekki tjá sig um málið eða hvernig maðurinn hefði komist frá landinu eða til þess.

Maðurinn hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald en dómstólar féllust ekki á kröfu lögreglu um framlengingu þess og því var hann úrskurðaður í farbann. Talið var að maður­inn hefði út­vegað sér nýtt vega­bréf. „Þó við tök­um vega­bréf­in get­ur þú ferðast án þeirra inn­an Schengen, þótt það eigi ekki við í þessu til­felli,“ sagði Mar­geir í samtali við mbl.is fyrir helgi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert