Ekki fleiri tilkynningar um eignarspjöll síðan 2010

Lögreglustöðin að Hverfisgötu.
Lögreglustöðin að Hverfisgötu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skráð voru 955 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júní og fjölgar þeim á milli mánaða. 

Tilkynningum um innbrot fjölgaði á milli mánaða og fjölgaði innbrotum á heimili mest, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júnímánuð. Alls var tilkynnt um 59 innbrot á heimili í júní en ekki hafa borist jafn margar tilkynningar í einum mánuði frá því í desember 2018. Heildarfjöldi innbrota það sem af er ári er þó svipaður og síðustu tvö ár á undan. Flest innbrot á heimili áttu sér stað í miðbænum, Vesturbæ, Seltjarnarnesi, Háaleiti, Hlíðarhverfi og í Laugardal. 

Alls bárust 116 tilkynningar um ofbeldisbrot í síðasta mánuði og eru það færri tilkynningar en í maí. Það sem af er ári hafa borist álíka margar tilkynningar um ofbeldisbrot líkt og bárust að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fjölgaði nokkuð á milli mánaða, en alls voru átta slík brot skráð í júní. 

Alls voru skráðar 57 tilkynningar um heimilisofbeldi í júní og fækkar slíkum tilkynningum nokkuð á milli mánaða. Aftur á móti hafa um 18% fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi borist það sem af er ári samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. 

Fíkniefnabrotum fækkar 

Töluverð fjölgun hefur verið á tilkynningum um eignarspjöll á höfuðborgarsvæðinu, en alls voru skráðar 177 tilkynningar í júní sem er umtalsvert fleiri tilkynningar en síðustu mánuði á undan. Líta þarf aftur til október 2010 til þess að finna álíka margar tilkynningar um eignarspjöll og bárust í júní þessa árs. 

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða rétt eins og tilkynningum þar sem ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða áfengis. 

Þá voru í júní skráð 708 umferðarlagabrot, að hraðamyndavélum undanskildum. Það sem af er ári hafa verið skráð um 24% færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu samanborið við meðaltal á sama tíma síðustu þrjú ár á undan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert