Íhuga uppsögn í kjölfar skipulagsbreytinga

Þjónustustöð Vegagerðarinnar í Dagverðardal á Ísafirði.
Þjónustustöð Vegagerðarinnar í Dagverðardal á Ísafirði. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Mikill kurr er á meðal starfsmanna Vegagerðarinnar á Ísafirði eftir að þeim var gert að taka á sig 20-30% launalækkun vegna skipulagsbreytinga. Jónas Gunnlaugsson staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið en hann starfar í þjónustustöð Vegagerðarinnar í Dagverðardal á Ísafirði og fékk tilkynningu um skipulagsbreytingar í bréfi 11. maí sl.

Jónas segir breytingarnar mikið reiðarslag og nokkrir starfsmenn séu að íhuga uppsögn.

„Þetta er náttúrulega bara mjög þungt. Við erum nokkur komin á þann aldur að við hlaupum ekkert í aðra vinnu. Ég á raunar bara tvö ár eftir af starfsævinni svo ég hleyp ekkert svo auðveldlega í aðra vinnu,“ segir hann. „Ég er bara grautfúll og finnst að með þessu sé verið að gera lítið úr mínu vinnuframlagi til Vegagerðarinnar.“

Þá hefur Jónas ítrekað óskað eftir útskýringu á skipulagsbreytingunni en engin svör fengið.

Þegar Morgunblaðið leitaði eftir viðbrögðum Vegagerðarinnar sagði Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri aðdragandann að breytingunum hafa verið langan. Í dag sé misræmi á launakjörum milli starfsstöðva deildarinnar, sem eru annars vegar í Reykjavík og hins vegar á Ísafirði. Breytingin sé þannig liður í því að jafna launakjör.

„Með þessari breytingu sem starfsmönnum á Ísafirði var kynnt í maí verða allir starfsmenn deildarinnar vaktavinnumenn allan ársins hring en hingað til hefur aðeins vaktstöðin í Reykjavík verið með vaktir allan ársins hring,“ segir Sigurbjörg. „Breytingin er því aðeins gerð til að samræma laun þeirra starfsmanna sem sinna sambærilegum störfum og er gerð að vel íhuguðu máli og í samræmi við þau lög sem opinberar stofnanir starfa eftir.“

Einhverjir starfsmenn hafa þó dregið lögmæti breytingarinnar í efa og hafa ákveðið að leita réttar síns hjá stéttarfélaginu Sameyki. Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, staðfestir í samtali við Morgunblaðið að málið sé komið inn á borð hjá félaginu. Þar sé það hins vegar í stoppi vegna þess að Sameyki og Vegagerðina greinir á um það hvort leyfilegt hafi verið að keyra umræddar breytingar í gegn án þess að semja við félagsmenn um launasetningu.

„Þetta er í vinnsluferli sem álitamál hjá okkar lögmanni og þar sem þetta snýst um túlkun kjarasamninga fer þetta hugsanlega fyrir félagsdóm,“ segir Þórarinn og bætir við: „Félagsdómur er þó mjög ásetinn núna svo þetta gæti tekið svolítinn tíma. Við munum sækja þetta mál en það mun ekki koma nein niðurstaða í því fyrr en það fer að nálgast jólin held ég, því miður. Þetta er álitamál og við erum ekki farin að sjá fyrir endann á því.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert