Lögreglan skarst í leikinn á Keflavíkurflugvelli

Vélin fór án farþeganna, enda óheimilt að hleypa þeim til …
Vélin fór án farþeganna, enda óheimilt að hleypa þeim til Bretlands án neikvæðs PCR-prófs. mbl.is/Unnur Karen

Kalla þurfti til lögreglu og öryggisverði þegar til rifrildis kom milli tveggja flugfarþega og þjónustuaðila á vegum Play á Keflavíkurflugvelli, þegar farþegarnir gátu ekki framvísað neikvæðu PCR-prófi. Því var þeim óheimilt samkvæmt breskum reglum að fljúga til Bretlands.

Þetta staðfestir Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri flugfélagsins, í samtali við mbl.is. Málið leystist án frekari átaka að sögn Nadine en í heildina voru það fimm farþegar sem gátu ekki framvísað neikvæðu PCR-prófi.

Hópurinn var á leið í flug Play til Stansted í London á fjórða tímanum í dag en vélin fór í loftið og farþegahópurinn sem um ræðir varð eftir á Íslandi.

Vísir greindi fyrst frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert