Pfizer og AstraZeneca veita góða vernd gegn Delta

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar veita tveir skammtar af bóluefni Pfizer 88 …
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar veita tveir skammtar af bóluefni Pfizer 88 prósenta vörn gegn sjúkdómseinkennum af völdum Delta afbrigði veirunnar. AFP

Tveir skammtar af bóluefni Pfizer og AstraZeneca við Covid-19 veita góða vernd við sjúkdómseinkennum af völdum Delta-afbrigðis veirunnar sem hefur dreifst um heiminn undanfarið. Vörnin er næstum því jafn góð og við Alpha-afbrigðinu sem var áður ráðandi. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem birt var í vísindatímaritinu New England Journal of Medicine og fjallað um á vef Reuters.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar veita tveir skammtar af bóluefni Pfizer 88 prósenta vörn gegn sjúkdómseinkennum af völdum Delta-afbrigðisins, samanborið við 93,7 prósenta vörn gegn Alpha-afbrigðinu.

Tveir skammtar af bóluefni AstraZeneca veita 67 prósenta vörn gegn sjúkdómseinkennum af völdum Delta-afbrigðisins samkvæmt rannsókninni, en áður var talið að það veitti aðeins 60 prósenta vörn, samanborið við 74,5 prósenta vörn gegn Alpha-afbrigðinu.

Minni háttar munur á virkni gegn Alpha- og Delta-afbrigðum veirunnar

 „Aðeins minni háttar munur mældist á virkni bóluefnanna gagnvart Delta-afbrigðinu samanborið við Alpha-afbrigðið eftir að viðkomandi fengu tvo skammta,“ stendur í niðurstöðum rannsóknarinnar.  

Mun minni vörn fæst af aðeins einum skammti af bóluefnunum. Einn skammtur af bóluefni Pfizer veitti 36 prósenta vörn einn skammtur af bóluefni AstraZeneca veitti 30 prósenta vörn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert