76 smit greindust innanlands

Röð í sýnatöku við Suðurlandsbraut í gær.
Röð í sýnatöku við Suðurlandsbraut í gær. mbl.is/Unnur Karen

76 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. Þrjátíu voru í sóttkví við greiningu og 46 utan sóttkvíar. 

Eitt smit greindist á landamærunum. 

Þrír eru nú á sjúkrahúsi með Covid-19, 371 í einangrun og 1.043 í sóttkví. 

Af þeim sem greindust í gær voru 54 fullbólusettir og 22 óbólusettir. 

Í gær greindust 69 við einkennasýnatöku og sjö við sóttkvíar- og handahófsskimanir. 2.769 sýni voru í gær tekin við einkennasýnatöku. 418 sýni voru tekin á landamærunum og 816 sýni við sóttkvíar- og handahófsskimanir. 

78 smit greindust innanlands í fyrradag og voru 19 í sóttkví. Langflestir voru fullbólusettir. 

Fréttin hefur verið uppfærð. 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert