Breyta reglugerð um takmarkanir

Fleiri þúsundir hafa þurft að fara í skimun við Covid-19 …
Fleiri þúsundir hafa þurft að fara í skimun við Covid-19 undanfarna daga vegna smita á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heilbrigðisráðuneytið hefur gert tvær breytingar á reglugerð varðandi núgildandi takmarkanir á samkomum vegna Covid-19 sem gildir til og með 13. ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðins.

Í reglugerðinni er ákvæði um að fjölda- og nálægðartakmarkanir nái ekki til barna sem fædd eru 2016 og síðar.

„Til að taka af öll tvímæli var ákveðið að setja inn þá reglugerðarbreytingu að þær takmarkanir nái jafnframt til 5. greinar reglugerðarinnar,“ segir í tilkynningunni og gilda því engar takmarkanir fyrir börn sem eru fædd 2016 og síðar.

Í höndum annarra 

Seinni breytingin snýr að því að fella brott ákvæði um loftræstingu. Í tilkynningunni segir að ákvæðið reyndist nokkuð óljóst og því erfitt í framkvæmd. 

Það er því nú í höndum framkvæmdaaðila að leggja mat á hvort unnt sé virða 1 metra nálægðartakmörkin í starfsemi sinni, ella þarf að bera andlitsgrímur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert