Hætt við malbikun á Snæfellsnesvegi í kvöld

Snæfellsnesvegur.
Snæfellsnesvegur. mbl.is/Sigurður Bogi

Vegagerðin hefur hætt við framkvæmdir sem átti að ráðast í á Snæfellsnesvegi í kvöld.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Til stóð að malbika Snæfellsnesveg frá hringtorgi við Borgarbraut og um 400 metra áleiðis að gatnamótum við Engjaás og áttu framkvæmdirnar að standa yfir frá kl. 20 í kvöld til 7 í fyrramálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert