Faraldur hefur áhrif á búferlaflutninga

Skólavörðuholt og miðborgarsvæðið í Reykjavík.
Skólavörðuholt og miðborgarsvæðið í Reykjavík. mbl.is/Sigurður Bogi

Búferlaflutningar til Íslands jukust nokkuð á öðrum ársfjórðungi þegar alls 2.490 einstaklingar fluttu til landsins, samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands, sem er tæplega helmingi fleiri en fluttu hingað til lands á sama ársfjórðungi í fyrra.

Fjöldi aðfluttra í heimsfaraldri er nokkuð áþekkur því sem sást á öðrum ársfjórðungi 2019 áður en heimsfaraldurinn braust út samkvæmt Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. Samsetning aðfluttra hefur þó tekið breytingum þar sem íslenskir ríkisborgarar eru hlutfallslega fleiri en áður. 

Brottfluttum fjölgaði nokkuð eftir að heimsfaraldurinn braust úr og mælast þeir enn örlítið fleiri en á sama tíma árið 2019. Það eru helst erlendir ríkisborgarar sem flutt hafa af landi brott, færri íslenskir ríkisborgarar hafa flutt búferlum til útlanda en faraldurinn virðist hafa gert það að verkum að margir sneru til síns heima eða frestuðu flutningum. 

Ef árið í heild er skoðað má sjá að í fyrra fluttu alls 2.667 íslenskir ríkisborgarar til landsins sem er nokkuð áþekkur fjöldi og hefur mælst á síðustu árum. Einungis 2.161 flutti hins vegar af landi brott og hafa þeir ekki verið færri síðan 1993. Samanlagt fluttu 506 fleiri íslenskir ríkisborgarar til landsins en frá því í fyrra og hefur sá fjöldi ekki verið meiri síðan 1987. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert