Undirbúningsnefnd fjallahlaupsins Súlur Vertical hefur undanfarna daga ráðið ráðum sínum og metið hvort og þá hvernig hægt sé að halda hlaupið í ljósi þróunar faraldursins og hertra samkomutakmarkana.
Nefndin metur það sem svo, að höfðu samráði við sóttvarnayfirvöld og samstarfsaðila, að mögulegt sé að halda hlaupið með ábyrgum hætti og víðtækum ráðstöfunum.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá aðstandendum hlaupsins, sem fram fer um helgina.
Þar segir að áður auglýstri dagskrá helgarinnar hafi verið breytt til þess að fylgja öllum sóttvarnareglum og fjöldatakmörkunum.
„Þar sem því verður við komið er gengið lengra en kveðið er á um í núgildandi reglugerð stjórnvalda, fyrst og fremst til að tryggja öryggi keppenda og starfsfólks.
Hliðarviðburðum Súlur Vertical, svo sem menningarhlaupi og krakkahlaupi í Kjarnaskógi, hefur verið aflýst auk þess sem ekkert verður af fyrirhugaðri dagskrá í endamarki í miðbæ Akureyrar. Keppendur verða beðnir að yfirgefa svæðið eins fljótt og auðið er að hlaupi loknu.“
Af öðrum breytingum og sóttvarnaráðstöfunum megi nefna:
„Vilji skipuleggjenda stendur hins vegar enn til þess að halda glæsilegt Súlur Vertical fjallahlaup sem standi undir væntingum hlaupara á öllum getustigum. Að þessu sinni verður í fyrsta sinn keppt í nýrri og mjög krefjandi 55 km vegalengd með 3.000 metra hækkun þar sem farið er meðal annars inn Glerárdal og upp á bæjarfjöllin Súlur og Hlíðarfjall. Auk þess eru 28 km og 18 km vegalengdirnar á sínum stað.
Mikill undirbúningur hefur átt sér stað undanfarnar vikur og mánuði og er allt að verða tilbúið. Merkingum er að mestu lokið á öllum leiðum, brautirnar eru í góðu standi og veðurspáin er frábær. Margir af bestu utanvegahlaupurum landsins hafa boðað komu sína í Súlur Vertical og er útlit fyrir spennandi og skemmtilega keppni.“