Hlýtt fram á kvöld á höfuðborgarsvæðinu

Austurvöllur á góðum sumardegi á síðasta ári.
Austurvöllur á góðum sumardegi á síðasta ári. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Í dag er spáð norðan og norðaustanátt 5 til 13 metrum á sekúndu, en sterkari í vindstrengjum við fjöll á suðaustanverðu landinu. Rigning verður með köflum en minnkar með deginum, en víða súld og þokumóða. 

Lengst af verður þurrt og bjart á suðvestanverðu landinu í dag. Hiti verður 7 til 19 stig hlýjast sunnan- og suðvestan til og verður hlýtt þar langt fram á kvöld samkvæmt Veðurstofu Íslands. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Norðlæg átt 3-10 m/s og bjart með köflum um landið sunnan- og vestanvert, en smá síðdegisskúrir sunnan til. Áfram dálítil væta á Norður- og Austurlandi, en styttir upp þar seinnipartinn. Hiti 7 til 22 stig, hlýjast sunnalands.

Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum. Stöku síðdegisskúrir sunnan- og vestan til. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Suður- og Vesturlandi.

Á mánudag (frídagur verslunarmanna) og þriðjudag:
Útlit fyrir hæga breytilega átt og lítilsháttar vætu, en bjart með köflum. Áfram hlýtt í veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert